You are here: Home1 / Miðlun og stjórnun
Skref 1
- Við höfum skipað umhverfisteymi sem sér til þess að aðgerðir Grænna skrefa nái fram að ganga og svo tengilið sem sér um samskipti við verkefnisstjórn Grænna skrefa.
- Við höfum kynnt Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar, heimasíðu Grænna skrefa og þátttöku vinnustaðarins fyrir öllu starfsfólki.
- Starfsmenn okkar eru hvattir til að líka við síðu Grænna skrefa á Facebook og á Workplace, sem er einnig umræðuvettvangur.
- Við höfum fundað með starfsmönnum um framgang verkefnisins og safnað saman ábendingum um hvað megi betur fara í umhverfismálum á vinnustaðnum. Stjórnendur hafa verið upplýstir um ábendingar.
- Við höfum sett upp áminningarlímmiða sem tengjast aðgerðunum í skrefi 1 (límmiðar sem í boði eru sjást á heimasíðu Grænna skrefa)
Skref 2
- Vinnustaðurinn skilar inn grænu bókhaldi samhliða umsókn um viðurkenningu fyrir Græn skref 2. Skil eiga sér síðan stað á graenskref@reykjavik.is fyrir 1. mars ár hvert.
- Við höfum fundað með starfsmönnum um framgang verkefnisins, stöðu græns bókhalds og safnað saman ábendingum um hvað megi betur fara í umhverfismálum á vinnustaðnum. Ábendingar hafa verið lagðar fram fyrir stjórnendafund vinnustaðarins.
- Vinnustaðurinn hefur sett sér markmið í grænu bókhaldi um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda vegna samgangna og úrgangs í samræmi við loftslagsstefnu Reykjavíkurborgar.
Skref 3
- Starfsfólk okkar hefur fengið fræðslu um umhverfismál um hvernig megi draga úr orkunotkun, flokka úrgang og nýta almenningssamgöngur.
- Vinnustaðurinn færir grænt bókhald og skilar fyrir 1. mars ár hvert og hefur sett sér markmið í flokkunum úrgangur, pappír og raforku/hitanotkun.
- Við höfum fundað með starfsmönnum um framgang verkefnisins, stöðu græns bókhalds og safnað saman ábendingum um hvað megi betur fara í umhverfismálum á vinnustaðnum. Ábendingar hafa verið lagðar fram fyrir stjórnendafund vinnustaðarins.
- Við kynnum grænt bókhald okkar og aðgerðir opinberlega árlega, t.d. í ársskýrslu, á vef okkar eða með einhverjum öðrum hætti.
Skref 4
- Við höfum vakið athygli á þeim árangri sem við höfum náð í vistvænni starfsemi og þannig hvatt aðra til góðra verka.
- Við höfum fundað með starfsmönnum um framgang verkefnisins, stöðu græns bókhalds og safnað saman ábendingum um hvað megi betur fara í umhverfismálum á vinnustaðnum. Ábendingar hafa verið lagðar fram fyrir stjórnendafund vinnustaðarins.
- Við höfum sett á fót að minnsta kosti eitt umhverfisverkefni umfram það sem Grænu skrefin segja til um.
- Vinnustaðurinn færir grænt bókhald og skilar fyrir 1. mars ár hvert. Við höfum metið gagnsemi og framkvæmd græns bókhalds vinnustaðarins, skoðað tækifæri til úrbóta og sett okkur markmið í a.m.k. 4 flokkum.

Umhverfis- og skipulagssvið
Borgartúni 12
-14
Scroll to top